Bjarni Þór...

Fagmennskan í fyrirrúmi

03.04.2007 21:58:31 / Bjarni Vidarsson

Til hamingju með bloggið...

Jæja, það er doldið síðan ég bloggaði síðast... Hef á eitthvern hátt gleymt því. Ætla koma með smá update, þessi færsla er tileinkuð JR frænda(Ella G). Eins og flestir vita þá er ég kominn úr láninu frá Bournemouth. Bournemouth er fínn klúbbur og er bærinn sjálfur flottur. Ég fór reyndar aldrei á ströndina, var kannski ekki veðrið til þess, rigndi mest allan tímann. Spilaði 6 leiki á lánstímanum, þrír sigrar, þrjú töp og setti eitt. Allaveganna búinn að spila mína fyrstu deildarleiki, sem er gott mál. Keyrði tilbaka til Liverpool eftir síðasta leikinn gegn Blackpool...

Kíkti til Hollands þegar ég kom tilbaka úr láninu, Everton voru í NY í æfinga/skemmtiferð. Mjög nett ferð til Hollands, nánar tiltekið Hengelo til að sjá guðson minn hann Viktor Nóa í fyrsta sinn, þvílíkur fagmaður þar á ferð btw. Sunna Líf var hress og kát, sérstaklega ánægð með dótið sem ég og Emmi völdum í Hamleys leikfangabúðinni. Ég og pabbi kíktum síðan á leik Twente og Ajax, fínn leikur, gaman að sjá Arnar spila aðeins líka. Kom mér á óvart hversu mikil stemming er á leikjum hjá Twente, vissi að það væri stemmari en ekki þetta mikill...

Var í Birmingham í gær, síðan var varaliðsleikur í kvöld, sigur 2-1 gegn NUFC. Komum doldið seint heim í gær, rútubílstjórinn keyrir líka alltaf á 40 miles. Erum alltaf með frekar ungt lið í varaliðinu, úrslitin eftir því. Í kvöld vorum við reyndar með gott lið og unnum. Kíkti heim um þar síðustu helgi. Alltaf gott að koma heim, Mölli og Fannsi 220 hressir...

Veðrið búið að vera mjög gott síðustu daga, sólbaðsveður. Svalirnar koma að góðum notum núna, búinn að þrífa þær og svona. Frikki þú gerðir þetta ekki, þú sagðir það. Gerðu Pétur og Haukur þetta...? Frikki það sagðir þú. Davíð H liggur ekki undir grun...

Meira seinna frá Liva, Bjarni Þór...


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 22:07:55 / Bjarni Vidarsson

Guðfaðir...

Já ég varð guðfaðir þann 15. febrúar síðastliðinn. Arnar bróðir og Saskia konan hans eignuðust lítinn strák. Viktor Nói var mjög hress þegar hann kom í heiminn, dökkur eins og pabbi sinn. Get varla beðið eftir að hitta hann og ekki síður VN og SL saman, það verður geggjað... 

Jæja þá er maður að tjilla hjá Emili Hallfreðssyni í London. Var nú reyndar líka hjá honum fyrr í mánuðinum. Emmi er eins og flestir vita hjá Tottenham, býr í Loughton. Tók bara lestina til hans í dag, þar sem við erum báðir í fríi á morgun tökum við gott bæjartjill á þetta á morgun. Stelpur Emmi(www.myspace.com/emmihall) er ekki í föstu sambandi eins og stendur og er að skoða markaðinn um þessar mundir. Emmi er að mínu mati feitasti bitinn á markaðnum um þessar mundir. Addel vinur hans Emma er líka mjög fínn gaur...

Kíkti heim til Liverpool um helgina, mjög fínt að komast aðeins á sitt eigið heimili. Hótelstemmingin verður doldið þreytt til lengdar. Það er samt ýmislegt ágæt á hótelum, laugin og annað...

Er búinn að spila fjóra leiki síðan ég kom hingað suður eftir. Vinna tvo og tapa tveimur. Byrjaði á bekknum í fyrsta, 5-0 sigur á Leyton, Darren með þrennu, hann kann þetta ennþá. Töpuðum síðan næstu tveimur, gegn Cheltenham og Yeovil. Unnum síðan Oldham um helgina 1-2. Gulltönnin setti fyrsta, ég annað. Leikurinn um helgina er gegn Doncaster á heimavelli.

Annars ætla ég ekkert að hafa þetta lengra, ég og Emmi ætlum að fara á ChaiPan, mæli hins vegar með þáttunum milli heims og helju, mikill leiksigur þar á ferð.

Guðfaðirinn...


» 13 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 17:15:16 / Bjarni Vidarsson

Lán...

Sæl, það er bara tjill hjá mér á Royal Norfolk hótelinu hér í City centre-inu í Bournemouth. Eins og flestir vita er ég hér á láni í mánuð, Bournemouth er ágætis klúbbur, eru samt ekkert í spes stöðu í deildinni. Málið fyrir mig hérna er að spila leiki, fínt að koma hingað þar sem þetta lið reynir að láta boltann ganga. Æfing í gær, ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið doldið öðruvísi en Everton. Samt fín æfing og fínir strákar. Er á hótelinu ásamt öðrum leikmanni(Jack Cork) sem er á láni frá Chelsea.

Keyrði niður eftir á mánudagskvöldið, tók um fjóra og hálfan tíma. Ekkert spes að keyra þetta en C4 stendur alltaf fyrir sínu. Tom Tominn stóð líka fyrir sínu og fann staðinn mjög nákvæmt.

Skemmtileg gestabloggin sem eru búin að vera á síðunni að undanförnu, já kannski fyrir utan eitt. Það var tekið út enda var Mölli aðeins of drukkinn. Strákarnir voru flottir, gaman að hafa þá enda fagmenn.

Reyni að vera doldið duglegur að skrifa...

BÞV.


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 14:35:41 / Bjarni Vidarsson

James og Lily ganga í það heilaga í júní... Bjassa er boðið

Já þá er dvöl okkar drengja hér á Adler way senn runnin á enda. Ferðin hefur verið athyglisverð en umfram allt hefur þetta verið góður tími. Við höfum verið duglegir piltarnir við að borða góðan mat og haft það betra en oftast áður í lífinu. Laugardagurinn var án vafa sá eftirminnilegasti þegar við fórum á leik Liverpool og Everton, eftir leikinn þá fórum við á hinn magnaða veitingastað ASK... kvöldið var svo það skemmtilegasta sem menn muna... fullkomin uppskrift að kvöldi fullu af fagmennsku... vorum tæpir á slagsmálum þegar ég opinberaði fyrir bretunum hommavestið sem strákarnir keyptu fyrir mig... ég hafði ekki fyrr rennt niður þegar ég var kominn í hrindingar og læti... gaman... annað skemmtilegt sem gerðist þetta kvöld var þegar Haukur var handleggsbrotinn í ca 5 mín en Pétur týndist í svona 15 mín... Sunnudagurinn var svo gott tjill í Trafford center þar sem við keyptum okkur allir skó drengirnir... gærkvöldið var líka gott... póker og svo létt rugl eftir það... mjög gott...

Þetta er ferð okkar drengjanna í mjög grófum dráttum. Pési var búinn að blogga hérna í nótt... en sú færsla var kannski ekki alveg nógu góð... þannig við hentum uppkastinu af henni bara í vaksinn... hmmm... strákar... uppkastið fór í vaskinn... það skal enginn segja mér að það hafi farið útum svalahurðina... það fór í vaskinn...

En að lokum viljum við drengirnir þakka Bjarna ótrúlega vel fyrir gestrisnina... Bjassi veit hvað það er að vera góður gestgjafi og fylgir þar öllum reglum í einu og öllu. Hann á leiðinni til Bournemouth á eftir þannig að Jerry, svaka fínn strákur, ætlar að keyra okkur út á völl...

En hafið það gott í dag og það sem eftir lifir.

DHH,FDJ,HÓ,PV


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 23:12:13 / Bjarni Vidarsson

Fuck Off Back To Norway Nanana... Everton Everton Everton

Klassi Klassi Klassi

Við erum hérna strákarnir í póker, ég reyndar datt strax út. Liverpool vs. Everton var í dag, markalaus leikur en engu að síður mjög gaman þar á ferð, Ég og Pési Ple reyndum eins og við gátum að koma af stað hópsöng, gekk ekki, Frikki og Hauksi hjálpuðu ekki mikið til, "Steeeeeeven Gerrard, The baby is not yours" "dudururdu Aaaandy Johnson dudururdu" Alger Klassi.

Hér er hópurinn í heild sinni, neðri frá vinstri, Haukzi Mökk, Pési Player, Frikki Buff, Efri röð frá vinstri, Bjarni "pro" Vidd, Davíð Ginola.

Mættir í íbuðina hans B.Vidd. Klassa íbúð, það er mökk,  já mökk sagði ég, Oleoleoleole... kíktum í tesco áðan, keyptum okkur birgðir af öl, áttum ekki að fá að versla ölinn ef ekki til skilríkjanna hans Hauks Bróðirs kæmi til.

Við Keyptum þetta Vesti handa Frikka áðan, 10 evrur á mann, Hann ætlar að vera í þessu í Liverpool bæ á eftir, vona að það endi ekki illa,

Bjassi Vidd ætlar að sýna okkur bæjinn í kvöld, jafnvel að breska msn vinkonan hans kíki á okkur í kvöld, hún er víst heit.

 

Við kíktum í handbolta áðan í bílskúrnum hans Bjarna, Frikki var rassaður, hann er ekki spes í handbolta. Hann er betri í Að Syngja Ray Charles, "Farðu Burt Hans"

Þetta var Gestablogg Davíðs Heimis (www.blog.central.is/skastrik)

Hinir Strákarnir Með Gestablogg á næstu dögum, Fylgist með, Ferðin Ljúfa,

Ferðin Góða, Þetta er Klassi, Bestu Þakkir fyrir að hafa okkur Bjarni,

Kv. Davíð Heimir Hjaltalín


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 21:43:13 / Bjarni Vidarsson

Great driver...

Þetta er í fyrsta sinn síðan ég byrjaði með þetta blogg sem ég hef átt í erfiðleikum með það að byrja færslu. Sit hérna fyrir framan sjónvarpið og er að horfa á Sky sports news, get ekki horft á leikina sem eru í kvöld þar sem gervihnötturinn upp á þaki er bilaður, tekur alveg rosalega langan tíma virðist vera að gera við hann, David Mclean að gera góða hluti. Fór í skólann í fyrsta sinn á þessu ári í morgun, var að fara yfir með kennurunum og annað, á smá eftir en fæ að vinna það heima hjá mér, Mike er fínn. Í hádegishléinu leyfði ég Norðmanninum að keyra smá á bílastæðinu, hann er ekki sá besti enda held ég að þeir séu ekki mikið með bíla í Haugasund. Ég þorði ekki annað en að segja honum að hann hefði staðið sig vel. Á von á mjög nettri heimsókn núna um helgina. Frikki, Pési Vidd, Hauksi og Davíð H ætla að kíkja til mín. Þannig að það verður fjör á Adler Way um helgina...

Leiknum gegn Liverpool í síðustu viku var frestað. Fékk að koma inn á í cirka 25 mín gegn Bournemouth í æfingaleik um síðustu helgi. Kom inn á fyrir Sandro sem spilaði reyndar ekki með bluetooth-ið. Spilaði fínt og náði að setjann sem var gaman, menn voru reyndar eitthvað að gagnrýna fagnið mitt...
Síðan er derby leikur um helgina, ég hef fína trú á okkur fyrir þann leik.

Ég er mjög ánægður með commentin sem ég fæ og vonandi verður áframhald á þeim. Commentarinn frá Boston klikkar seint og aðrir ekki heldur. Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili enda ekkert meira að segja frá. Reyni að koma með eina góða eftir ferð fagmannanna fjóra til mín.

Ljónið...


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 18:48:50 / Bjarni Vidarsson

Gigs...

Var að spá í því hvað mér finnst skemmtilegast við þessa síðu, það er without a doubt commentin, þvílíkir fagmenn þar á ferð. Sly Stallone var mættur á Goodison í gær, hann er klárlega buff buffanna. Hann kom inn í klefa fyrir leikinn í gær og tók í höndina á öllum. Mér fannst doldið fyndið þegar Reading komst yfir þá sungu Reading fans ¨Rocky what's the score, Rocky Rocky what's the score¨. Fjarnámið fer að fara aftur á stað í vikunni, tek tvo áfanga Stæ og Ísl. Á von á nokkrum skemmtilegum heimsóknum á næstunni, síðan er spurning hvort Frikki komi, enginn pressa skilurru...

Ekkert af leikjum búið að vera, er í næstu viku gegn Liverpool. Æfingar ganga fínt, varaliðsþjálfarinn var með sögustund í dag, í u.þ.b. klukkutíma. Þar voru sögur af mönnum eins og Gazza, Gravesen og Ginola. Andy finnst gaman að segja sögur...

Mæli hins vegar með diskunum með JT og James Morrison, fagmenn þar á ferð...

Kv. Zeli Magg...


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 21:24:36 / Bjarni Vidarsson

Grétar minn...

Ákvað að koma með eina færslu á þessu ágæta sunnudagskvöldi, hef verið að fá óskir um blogg. Þetta er einmitt fyrsti sunnudagur nýs árs. 2006 búið, 2007 gengið í garð, leggst bara vel í mig en ykkur...? Já en jólin voru fín, fékk að kíkja heim í nokkra daga, hefði verið frekar tilgangslaust að vera hérna á jólunum þar sem flestir leikmenn liðsins voru heilir og ekki sá ég fram á mikið af tækifærum. Einnig lítið að gerast, lítið af æfingum og ég hefði bara verið að ferðast um England með liðinu. En þetta voru fagmennsku jól, góður matur, Davíð bróðir nettur, frændur mínir nettir(Frussi, Jossi og hinir) og síðasta helgi var frekar nett, Fannar fór þar á kostum.

Hefur verið fín keyrsla á æfingum undanfarna daga. Leikur gegn Preston á síðasta þriðjudag, vorum með blöndu af reyndum og óreyndum. Preston voru með fínt lið, minnir að Ricketts(sá sem var í Bolton) hafi verið frammi. Var samt suddalegur vindur, ekki alveg að gera sig, en leikurinn var fínn. Endaði 0-0, kannski ekki steindautt 0-0 en samt sem áður dautt. Var með Anderson félaga mínum á miðjunni allan tímann. Doldið skemmtilegt sem gerðist eftir æfingu í gær, Anderson kom til mín þegar ég var að labba inn og segir ¨Bjarni, you me run...?¨´, ég hugsaði með mér, já fínt að jogga og teygja aðeins meira. En Anderson hafði aðrar hugmyndir, hann tók bara á sprettinn og ég elti hann, sprettuðum í cirka kortér. Smá misskilningur þarna hjá okkur..!

Annars er ekkert mikið í fréttum, þið megið samt sem áður endilega commenta hérna.

Kv. Jens Parmes.


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 19:50:27 / Bjarni Vidarsson

Rebbi rebbi...

Seint skrifa sumir en skrifa þó. Sæl, ekki allir komnir í jólaskap? Frekar slöpp setning eftir að hafa byrjað færsluna vel. Svona er þetta stundum, byrjar vel en dalar, ætla að rísa upp aftur núna með eina góða. Allt pakkað í bænum í dag. Fór í bæinn eftir æfingu. Hitti Norðmanninn eiturhressa Lars Stubhaug(markmaður í unglingaliðinu) sem var í miklum verslunarhugleiðingum. Lars var í allan dag að leita sér að vesti en hann fann ekki neitt nógu flott til að vera í á jólunum í Haugasund. Annars var ég bara spenntur fyrir tveimur búðum, Utility búðinni(búð fyrir heimilið) og búðinni hans Orra Þórðar All Saints.

Skemmtileg heimsókn sem ég fékk í byrjun desember, Sunna Líf, Saskia, mamma og pabbi komu til mín og voru hjá mér yfir eina helgi. Var ekki búinn að sjá Sunnu Líf lengi og var þvílíkt gaman að sjá hana enda er hún yndisleg, með setningar eins og blessaður, nettöörr og aðrar á hreinu. Styttist líka í næsta yndi. Var í hópnum gegn West Ham þessa helgina, pabbi kíkti á leikinn, var flottur í directors boxinu. Mamma og mæðgurnar elduðu læri fyrir mig á meðan, svaðalega gott.

Einn varaliðsleikur í þessum mánuði, hann var gegn Bolton 5. desember. 2-2 jafntefli. Þetta er eini leikurinn sem verður í tæpa tvo mánuði. Chelsea á morgun á Goodison, Chebs er í starting eleven, var næstum því búið að líða yfir hann á æfingu í dag þegar hann fékk skilaboðin. Efa að ég sé í hópnum en maður veit aldrei, þetta er eins og ástin maður veit aldrei.

Annars býst ég við jólum hér í Englandi, þau verða eflaust fín. Endilega commentið og segið ykkar skoðanir á lífinu.

Ég kveð að sinni, 32 eða 41?


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 17:49:58 / Bjarni Vidarsson

Hey Mama.

Sæl, gífurlega skemmtileg þessi blogghlé mín eða hvað? Nei ég segi svona, en eins og Davíð sagði að ég ætti, þá ætla ég að hysja upp um mig buxurnar á þessum ágæta Sunday, samt ekki any given Sunday. Ætla hins vegar að byrja á því að óska mömmu til hamingju með afmælið, 52 ára í gær, alltaf jafn ungleg og falleg samt sem áður. Love u Ma..!

María Mjöll frænka og Brynni eignuðust lítinn dreng þann 9. nóvember, myndar strákur og vil ég óska þeim til hamingju með strákinn(þ.e.a.s. ef þau lesa þetta). Birkibergið eflaust í skýjunum, ef drengurinn verður eitthvað líkur frændum sínum Frikka og JR þá eru skemmtilegir tímar framundan.

Aðeins að fótboltanum eða knattspyrnunni, sigur gegn Wigan í vara á miðvikudaginn síðasta. Fínt að fá leik, eru ekki margir í þessu blessaða varaliði en þegar þeir eru er fínt að nýta þá. Stjórnaði miðjunni með Van der, Faddy með tvö, fínn sigur. Er alltaf að nálgast þennan hóp, þennan umtalaða 16 manna. Mikið af leikjum framundan, þetta kemur.

Fer að líða að prófum í fjarnáminu og síðan fer að líða að því að ég klári skólann hér úti, það verður um jólin. Ætli það verði graduation partý? Veit það ekki. Hlakka mikið til að fá prinsessu Sunnu Líf, Saskiu og Ma og Pa til mín í byrjun desember. Byrjað að dimma mjög snemma og einnig er kuldinn farinn að láta vita af sér, samt ekki jafn slæmt og á Íslandi held ég.

Lost 3 í kvöld allt að gerast, ég goodbya að sinni.

Bjarni Þór.


» 12 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 12:16:54 / Bjarni Vidarsson

Snitzel.

Bjelluð, BÞV hér. Nývaknaður og þokkalega hress á þessum ágæta sunnudegi. Er þó frekar kvefaður og með leiðinlega hálsbólgu, en eins og einn snitzelinn sagði þá er lífið ekki alltaf dans á rósum. Kom heim frá London seint í gær, hefði verið kominn mun fyrr ef rútan okkar hefði ekki orðið rafmagnslaus fyrir utan Emirates. Palli félagi minn og fagmar var hjá mér um síðustu helgi og skemmtum við okkur tveir mjög vel, alltaf gaman að fá heimsóknir.

Sat á bekknum gegn Luton í Carling Cup á síðasta þriðjudag, stórsigur hjá okkur. Bjóst við því að koma inn, allt þangað til David Weir meiddist og það þurfti að breyta áherslum. En þetta kemur, þolinmæði.

Þrír strákar úr FH að æfa með Everton þessa dagana, Brynjar Ben, Óli Guðmunds og Björn Daníel heita þeir. Orri Þórðar(the weatherman) og Ingvar Jóns eru með þeim í för.

Eins og ég sagði hér fyrr í færslunni þá var ég í London. Ferðaðist með liðinu þangað, leikur gegn Arsenal á hinum glæsilega Emirates velli. Fín úrslit, þótt dómarinn hafi gefið þeim jöfnunarmarkið. Voru flestir leikmenn liðsins með eitthvern vott af flensu.

Vill þakka fyrir öll skemmtilegu commentin sem ég hef verið að fá, vonandi halda þau áfram að flæða um síðuna.

Bjarni Þór.


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 18:25:14 / Bjarni Vidarsson

Pjelli með Gestó.

Blelluð.

Baddi í eldhúsinu og ég við lyklaborðið.

Baddi kom mér til að skrifa mína fyrstu bloggfærslu hérna. Síðustu 2 dagar hérna á Adler Way hafa verið heldur betur áhugasamir enda ekki ástæða til annars. Íbúðin að standa sig, Ciddinn flottur og próteinið í skottinu.

Flugið var athyglisvert, nokkrir nettir poolarar um borð komnir vel á stað í gleðina.

Í gær var min fyrsta upplifun af Da Prem. Þegar labbað var inná Goodison var þó nokkuð kallað eftir manni "Mikel, Mikel!"og krakkar að biðja um eiginhandaáritanir voru ófáir. Eftir að hafa fengið sér nokkra kalda með Nuno V, P-Neville og Timmy Cahill var manni svo fylgt upp í V.I.P stúku þar sem Joe Royle bauð manni sæti hjá sér. Góður sigur hjá okkur Everton mönnum á Sheffum en fannst leiðinlegt að þurfa afþakka kaffiboðið hjá Moyes þar sem Baddi vildi drífa sig út á lífið.

Í gærkvöldi skutlaði Baddi mér svo á Albert Dock og var dansað á BabyBlue langt fram eftir nóttu með nokkrum innfæddum, ég undir nafninu Mikel Arteta.

Eftir að hafa vaknað i morgun, Baddi nýkominn af æfingu hoppandi á mér, var farið niðrí bæ og verzlað eins og sannur Verzlingur.

Lestin tekin heim á morgun og kjellinn sáttur með ferðina, Baddi búinn að elda og er búinn að segja gjörið svo vel.

Kv. Palli..!


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 18:34:25 / Bjarni Vidarsson

Smá update.

Blelló, er ekki kominn tími á smá blogg frá mér. Nokkuð mikið verið í gangi hjá mér, var til dæmis í Svíþjóð í cirka viku með u-19 og einnig hafa verið nokkrir leikir í varaliði. Annars gengur eldamennskan fínt hjá mér, er að prófa mig áfram og gengur þetta framar vonum. Hef örugglega erft eldamennskuna frá afa. Mér finnst samt sem áður líka fínt að elda, þó svo ég nenni því ekki einstaka kvöld, hringji þá í Chung Ku félaga mína og þeir búa til eitthvað. En nóg um það, kíkjum aðeins á þetta.

Leikjum í varaliðinu hefur fækkað mikið síðan í fyrra, í fyrra voru þeir um 26 en í ár eru þeir 16, liðin eitthvað að spara? Erum búnir að spila fjóra leiki, tvö jafntefli, einn sigur og eitt tap. Þetta gengur svona upp og ofan í þessu varaliði enda er liðunum breytt í hverjum leik. Aðalliðið tapaði sínum fyrsta leik gegn Boro á laugardaginn, aðeins að slaka á en vonandi förum við að fara aftur í gang.

Undankeppni EM í u-19 var í Svíþjóð í síðustu viku, unnum tvo og töpuðum einum. Erum ennþá áfram sem besta þriðja sætis liðið og vonandi förum við áfram. UEFA með gífurlega skemmtilega reglu, sem gerði það að verkum að Pólland og Svíar fóru beint áfram. En svona er boltinn ekki alltaf dans á rósum. Góðir sigrar gegn Pólllandi og Færeyjum, tap gegn Svíum í leik sem var spilaður í leðju. Hentaði Svíunum vel enda með tvo slána frammi sem gerðu vel í leiknum að vinna skallabolta og halda boltanum fyrir þá. Alltaf gaman að hitta strákana(við strákarnir, Nóri).

Heimsókn núna um helgina, Pálsson jr. ætlar að kíkja á mig, verður gaman að fá hann.

Aðeins byrjað að kólna hérna, þarf að fara að læra á hita system-ið hérna í íbúðinni. Frekar flókið dæmi, site managerinn hlýtur að kenna manni á þetta.

Gaman að fá commentin frá ykkur, bara láta þau flæða mar..! Annars er þetta fínt í bili héðan.

Bjarni Þór.


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 16:17:22 / Bjarni Vidarsson

Fyrsta færslan í rúma fjóra mánuði..!

Já veriði sæl, fyrsta bloggfærslan í rúma fjóra mánuði. Netið loksins komið í nýju íbúðina, allt að verða klárt. Flutti inn strax og ég kom frá Frakklandi, fór í viku til Frakklands(Nice) í lok Júní. Nokkuð mikið búið að vera að gerast á þessum cirka fjórum mánuðum. Ætla að reyna að fara yfir eins mikið og ég get hér í færslunni.

Sumarfríið heima á Íslandi var fínt, var í cirka fimm vikur heima. Gerði mest að því að slaka á heima, alltaf gott að tjilla aðeins. Alltaf gaman að vera heima þegar öll fjölskyldan er á Íslandi. Fór í viku til Frakklands, nánar tiltekið Nice(Vence). Fór með mömmu og pabba, frábær ferð. Skellti mér á Jet Ski með pabba, frekar nett en einnig nokkuð hættulegt. Gaurinn sem sá um okkur var ekki alltaf sáttur með mig, var að fara of langt út á sjó, það er annað mál. Mónakó er frekar nett borg(ef má kalla borg), höfnin og casino-ið skemmtilegir staðir.

Fór beint til Englands frá Frakklandi, flutti inn í íbúðina í byrjun júlí. Það var frekar mikið að gera fyrstu tvo mánuðina að gera allt klárt. Búið að vera aðeins rólegra núna upp á síðkastið, gólfefni og annað komið á þannig að ég er að verða nokkuð sáttur með cribið. Lagði ekki gólfefnin sjálfur, lét aðra um það og hef látið Gerry(vinnur hjá klúbbnum) fagmann um mikið af hlutum þar sem ég hef aðallega verið að einbeita mér að vinnunni. Hlutirnir hérna á Englandi taka aðeins lengri tíma en á Íslandi, t.d. tók það cirka tvo mánuði að fá netið.

Búinn að fá nokkrar heimsóknir síðan ég flutti inn, mamma var hjá mér í rúma viku fljótlega eftir að ég flutti inn. Frikki og Búi frændur mínir kíktu í heimsókn um Verslunnarmannahelgina, nettir frændurnir úr Versló. Davíð bróðir kíkti til mín fyrir tveimur vikum og var yfir eina helgi hjá mér, fórum á derby leikinn saman og kíktum aðeins í Selfridges, versluðum aðeins bræðurnir. Mamma og pabbi komu síðan um síðustu helgi og hjálpuðu mér að klára að gera hlutina ready.    

Tímabilið hefur byrjað fínt hjá mér og mínum mönnum, ekkert annað að gera en að halda áfram að standa sig þá kemur þetta. Ferðaðist með liðinu til Peterborough á þriðjudag en var ekki í hóp, hefði verið fínt að fá að spila þann leik en meiðsli hjá leikmönnum spiluðu þar inn í. Tveir góðir sigrar gegn Skotum í byrjun september með u-19 ára liðinu, undirbúningur fyrir EM í byrjun október.

Ætla annars að vera aðeins duglegri að blogga nú þegar ég hef netið.

Kveð að sinni frá Adler Way, Bjarni Þór.


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 20:53:15 / Bjarni Vidarsson

Sumarfrí.

Sæl og blessuð, þá er maður mættur í Hafnarfjörðinn, á Brautina. Síðasti leikurinn þann 7. maí. Búinn að vera heima núna í cirka viku, búið að vera mjög góður tími og verður það næstu 7 vikurnar, er í fríi til 2. júlí. Er svo sem ekki í fríi allan tímann, þarf að halda mér í formi, er með program og annað frá DB. Fór strax í þrjú próf er ég kom heim í fjarnáminu, gekk vel í tveimur og nokkuð vel í einu.

Var ekki í hóp í síðasta leik gegn West Brom, Vic kom inn á og skoraði, spilaði vel þessar 25 mínútur sem hann fékk. Sénsinn kemur þá á næsta seasoni, þolinmæðin þrautir vinnur allar(Þórður hagyrðingur hefði ekki getað orðað þetta betur).

Í varaliðinu lentum við í áttunda sæti, ásættanlegur árangur, miðað við aldur liðsins á tímum. Í u-18 í öðru til þriðja sæti með Man. Utd á eftir Blackburn. Spilaði ekki mikið með u-18 eftir áramót, en samt sem áður eitthvað.

Strax er ég kem út eftir sumarfrí mun ég flytja, búinn að finna góða íbúð við Mersey. Það verður mun betra að vera á sínum eigin stað, já búinn að bíða eftir þessu nokkuð lengi.

Vil benda fólki á síðuna www.buffid.bloggar.is, Frikki frændi(kamburinn) fer þar á kostum.

Ég kveð að sinni héðan af 94, Bjarni Þór Viðarsson.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 júlí
Leitarbox